Jólin eru nú bara einu sinni á ári...og Karen og Brynhildur og Guðrún og Hildur

... ég veit. Það tekur mig tíma að stimpla mig út af þessari síðu.
Það má vel vera að ég verði ekki eins súr og Hildur og hætti algjörlega komu minni hingað til þess að blogga.

En ég var í strætó á leið heim úr piano áðan þegar ég kom auga á trukk sem hafði verið komið fyrir í Ártúnsbrekkunni. Utan á honum var auglýsing... eða ég veit ekki hvað annað. Þar stóð ,,Jólin eru bara einu sinni á ári".

Ég náði ekki alveg samhenginu í auglýsingunni. Ég sá ekkert hverjir voru að auglýsa en hins vegar fór ég að hugsa um jólin. Jólin sem eru jú bara einu sinni á ári. Er þá ekki bara hægt að hafa þau á þessum eina tíma sem þau eru ? Í staðinn fyrir að hefja undirbúninginn eins og risastóra brúðkaupsveislu mánuðum fyrir stóra daginn ?

Ég held allavega að flestir séu sammála um það. Enda finnst mér lítið hafa farið fyrir jóladrasli þetta árið... kannski fólk sé farið að vera sammála um að hefja hasarinn ekkert af fullu fyrr en núna í blálok nóvember eða byrjun desember......
......
.
...................................
....................................................
..........
............................
................................................. ............... ................... ............
 .............                        .................         ...............        ................ ........
.................................... ................. ................... .................. .
 ....................





......ég nenni ekki að hugsa lengur...... Latínupróf á morgun!!!

peningam´linog Karen og Brynhildur og Guðrún og Hildur

ég er ennþá rukkuð um pening vikulega, þarsem ég á svona 0,1% af innsettum myndum þá fyndist mér best ef einhver myndi skipta um símanúmer eða sá aðili sem að bætir  langflestu myndum inn (vil samt ekki vera leiðinleg en já) og svo er ég að pæl að hættaá þessari síðu... 

kvðja

Hildur

Hollandog Karen og Brynhildur og Guðrún og Hildur

Jæææææææææææææja það er kominn tími fyrir örlitla ferðasögu frá Hollandi. Nú er Karen búin að koma inn myndunum okkar frá ferðinni á nýju mæspeissíðu MR-Kórsins --> myspace.com/shredderinn <-- sem var stofnuð eftir ferðina.
Kórinn hafði virkilega gott af því að fara þessa ferð til þess að þjappast aðeins saman og verða meira að einni einingu. Nú var haldið í gær, fyrsta kórpartýið síðan við komum heim frá Hollandi og þar var líf og fjör og bras og þras eins og á Bunulæk

Ferðasöguna er hægt að finna hérna til vinstri á síðunni undir Aðalvalmynd.

-Brynkz


Ert þú heimsforeldri ?og Karen og Brynhildur og Guðrún og Hildur

Ég var núna rétt í þessu að reikna út heildarsummu þess fjármagns sem fjölskyldan mín gefur til góðgerðarmála á ári.
Það er alveg slatti skal ég segja ykkur.
Í fyrra gerðist ég heimsforeldri og hef gefið núna í rúmlega heilt ár 1000 krónur til Unicef til styrktar barnahjálparstarfi þeirra. Kári bró gefur helming þeirrar upphæðar auk þess sem Una er foreldri lítillar stúlku í Suður-Ameríku og Sturla gefur sömu upphæð til annars barns einhvers staðar annars staðar. Hann gefur líka 5000 krónur á mánuði til Unicef og kærastan hans, Lena 1500 krónur. Mamma og Pabbi styrkja dreng í Pakistan sem stundar nú nám í hverfisskólanum sínum með bókunum sem við keyptum handa honum, á skólabúning, fær að borða á hverjum degi og heilbrigðiseftirlit fyrir skítnar 2300 krónur á mánuði og fyrirtækið okkar gefur þar að auki 1500 krónur til Unicef.

Strákurinn heitir Agsa Jaffer og sterkasta fagið hans er enska. Hans veikasta fag er Urdu. Hann er duglegur að læra og hagar sér vel.

Við töluðum ekkert saman og ákváðum í sameiningu að skipta þessu svona heldur skráðum okkur án þess að vita af hinum og nú erum við öll að gefa eitthvað til góðgerðarsamtaka sem eru að hjálpa börnum um allan heim.
Sem dæmi má nefna að Unicef vinnur að verkefnum eins og að bólusetja milljónir barna, byggja upp skóla, koma á heilbrigðiskerfi og bygjga vatnsbrunna þar sem þörf er á. Ég persónulega sé engan veginn eftir þessum þúsundkróna seðli sem ég gef á mánuði og heldur er ég bara stoltari fyrir vikið.
Þetta finnst mér að allir sem geta ættu að gera. Maður finnur eeeeeeeekkert fyrir þessu og sjáið bara hvað þetta safnast þegar saman kemur!

Samanlagt gefur fjölskyldan mín tæplega tvöhundruð þúsund krónur á ári og við tökum ekki einu sinni eftir því.
Þetta ættu allir að taka sér til fyrirmyndar og gera slíkt hið sama ef þeir eru ekki núþegar orðnir heimsforeldrar.
 vs

Reynum nú að leyfa börnum að alast upp á réttan hátt með námi og betri lífsgæðum

-Brynkz

Auglýsing

Ævintýri Lúðvíks, örlagafulla fisksins!

Prófíll

  • Nafn: og Karen og Brynhildur og Guðrún og Hildur
  • Staður: Reykjavík
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: bréfberi helvítis
  • Um mig: Þegar við erum ekki að leika okkur á badehose erum við að leika okkur á einkamal.is.
  • Annað: Yabba-dabba-dú. 16495876132605497861Y

Innskráningar kubbur

Það eru.....

Könnun

Hvað á Karen að gera í framtíðinni?

Þetta helst......

3. Janúar 2009

Athygli er vakin á því að SÖGURNAR AF LÚÐVÍKI, HINUM ÖRLAGAFULLA FISKI, eru komnar aftur!

3. Janúar 2009

Hildur og Brynhildur vinna hörðum höndum að því að koma síðunni aftur í gang, henda út gömlu stöffi og koma með nýja strauma inn ;)

1. Janúar 2009

Gleðilegt nýtt ár!

Eldri fréttir er hægt að skoða undir Aðalvalmynd.

Hvað er á fóninum?

Brynhildur: Congratulations - Jeff who?
Brynkz og Hildur: Kanye West f. Daft Punk (remix) - Stronger
Brynkz: David Guetta - Love Is Gone
Karen: Kate Nash - Birds
Hildur: Janis Joplin - Bye, Bye, Baby
Brynkz: Human Volume - Brain Police
Guðrún: Lion King lagið á þýsku
Hildur: Tower of Power - What is Hip?
Hildur: Peaches and Herb - Groove Thing

Ef þið viljið deila einhverju lagi með umheiminum, commentið bara og við bætum því hér inn.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Flokkar