scooby doo and the mystery solving teenagersog Karen og Brynhildur og Guðrún og Hildur

Ég var að pæla, mynduð þið vilja vera eins og krakkarnir í Scooby-Doo? Í fyrsta lagi þá er Fred bara hýrasti maður á jörðinni, í öðru lagi gengur Vilma um í appelsínugulri peysu á degi hverjum og er leiðinleg, í þriðja lagi er Daphne rauðhærð (sorry Brynhildur) og í fjórða lagi er besti vinur Shaggys HUNDUR. Scooby er sá eini þeirra sem að er ekki sorglegur. Flestir hundar gera ekkert skemmtilegt, en Scooby leysir ráðgátur. Hinir krakkarnir hanga með hundi sem leysir ráðgátur og leysa svo margar ráðgátur að þau hafa ekki tíma fyrir annað. Það kalla ég ekki líf. Þetta kalla ég líf. Blogg.

Er ég gengin of langt?
Fór ég yfir strikið?
Sleppti ég af mér geðbeislinu?

Ef til vill...

Sko ég verð að hæla Brynhildi fyrir að standa sig með prýði í bloggfærslum. Guðrún stendur sig einnig vel. Ég tel mig standa vel síðan að þessi síða var endurlífguð með komu þeirra. Karen þú ert fallin. Ég legg til að Karen verði næst til að blogga, megi það verða fallegt.

Ég þarf að fara að fara að fara að fara að fara í World Class...hef ekki farið síðan á föstudaginn! VERÐ AÐ FARA Í KVÖLD. Jibjibjib. Sko í dag var ég með þennan fjárans hausverk! Ég var bókstaflega í tárum á tímum! En svo þegar ég kom heim var hann eiginlega farinn. Á sinn hátt varð ég fyrir vonbrigðum, loksins þegar ég hef tækifæri til að hvíla höfuð mitt þá hættir það að væla. Guðrún fokk sko ég held að þú þurfir að toga mig aftur upp úr sukkinu þetta gengur ekki lengur! Ég hef bara verið í svo mörgum ökutímum að ég hef ekki tíma fyrir World Class og allt hitt!

En já Brynhildur ég er sammála. Við hittumst á laugardaginn. Hvernig er annars að vera svona dugleg? Jæja ég ætla að fara að læra þar sem að ég hef engan hausverk til að kvarta yfir lengur. 

Wir möchten bestellen!og Karen og Brynhildur og Guðrún og Hildur

Guten Tag Meine liebe liebe liebe Freunde!

Ich möchte gern mit dir etwas nechsten Wochenende machen.
Was wollen ihr machen ? Am Freitag will ich mit Matti ins Kino gehen aber sollen Wir am Samstag Abend triffen, Ja?

-Brynkzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzz

Sýndarmátun er málið!og Karen og Brynhildur og Guðrún og Hildur

Mbl.is greinir nú frá hinu nýja tækniundri:

~SÝNDARMÁTUNARSPEGILLINN !!!!!!~

LOKSINS er kominn spegill sem í raun mátar fyrir mann í stað þess að þurfa að eyða dýrmætum tíma sínum í að gera það sjálfur!

Þessi frétt minnir mig samt óneitanlega á myndina Clueless þar sem aðalpían var með tölvutækt forrit þar sem hún gat valið fatnaðinn fyrir hvern dag áður en hún náði í hann í fataskápinn sinn, sem var svo stærri en fatahengið á Broadway.

Ótrúlegt að aðeins tólf árum eftir að myndin var gefin út -bara tólf árum!!- sé "ðö ríl þíng" komið á markað.
Ótrúlegt alveg hreint... óóótrúúúlegt!

- Brynhildur

vá maður!og Karen og Brynhildur og Guðrún og Hildur

Djíses ég er hérna uppí rúmi í tölvunni að blogga og það er bara ekki hægt að vera í tölvunni án þess að Kisi komi og leggist ofan á lyklaborðið! Hann er svo brjál.

En ég var að horfa á handbó áðan o gég var frekar hissa á því hvað Þjóðverjarnir voru harðir. Hefði haldið að þeir hefðu líka viljað spara sig eins og Íslandið en nei nei þeir spiluðu af hörku. Össs......
Fyrir mér var eins og íslenska liðið væri orðið svoldið þreytt. Boltinn gekk ekki nógu hratt hjá þeim og þjóðverjarnir stálu honum trekk í trekk. En það er alltí lagi! Ísland er allavega komin áfram og þeir fá bara góða hvíld núna þangað til á þriðjudag.

En að öðru... Við Hildur og Guðrún fórum í partý á föstudaginn, hjá Fanneyju og við dönsuðum af okkur skóna! Áður en Guðrún og Hildur komu þá var ég eitthvað að reyna að fá fólkið á dansgólfið án árangurs, Bryndís kom með mér en svo var þetta fremur súrt. Ég náttla þekkti ekki marga þarna :) En svo voru allir komnir saman á dansgólfið undir lok og þá var mikið gaman, mikið fjör.
Fór svo aftur í partí í gær hjá Röggu og Þórgunni.. sjitt þið hefðuð átt að koma þangað. Það er bara eitthvað með mig... ég fer alveg inní mig þegar það er svona mikið af fólki í kringum mig.
En við Gerður fórum s.s. saman og kíktum svo í partí hjá Söndru bekkjarsystur okkar þar sem það var eitthvað '87-'88 lið. Það var ágætt þar en svo fórum við bara á söbvei og skunduðum heim á leið.

EEEEEEEeeeeeeeen já prófavikan mikla! Hvað er málið með kennara að skella fjórum prófum á mann á einni viku!!!!! Alltof mikið! Ég er ekki sátt við þetta... en ég verð að segja það sama og Hildur... mér finnst ógeðslega leiðinlegt að skrifa hvað ég var að gera.
Varð bara að segja frá þessari brjáluðu partíhelgi! Gerist ekki oft... hef ekkert gert síðan í nóvember! En jæja elskukrúsídúllubollukrúttífloppí?rúsínusnúðarnir mínir, við sjáumst á morgun!
Mig langar að setja inn myndir, nokkrar af söngkeppninni og svo úr partíinu í gær, leitt að myndavélin hafi verið batteríslaus á föstudag.

En allavega bið ég að heilsa!
-Takk takk, Brynhildur!

Fyrirsögn? Nei, ég held ekki.og Karen og Brynhildur og Guðrún og Hildur

Sælar dömur mínar og dæmir!

Heyriði ég vil byrja á að leggja til að það verði settir fleiri undirflokkar! Ég meina...Vissir þú? flokkurinn er glæsileg sköpun mín og mun ég bæta inn á hann eftir þetta blogg þannig að kíkið endilega á hann! Annars legg ég til að Guðrún skrifi um óheppilega óléttu sína á fimmta áratugnum, Brynhildur um hvernig í ósköpunum á að þvo ryðgað hár og Karen það þegar hún þurfti að búa til vaxmynd úr kaktusi frá Singapúr.

En já mikið er nú gaman að blogga! Mér finnst það svo gaman. En mér finnst svo leiðinlegt að blogga um eitthvað sem ég hef verið að gera......þannig að ég veit ekki aveg hvað ég á að segja.

Hérnaaaaa...eru ekki allir að læra fyrir prófavikuna sem er að koma? Ég þarf að fara að læra braðum. Ég vil biðja að heilsa öllum! Ég elska þig allir.

Bæbæ, kveðja, hildur

Partí í kvöldog Karen og Brynhildur og Guðrún og Hildur

Jæja stelpur... heyrði að þið ætluðuð bara að fara að horfa á vídjóóóóóóóó.... puff!

Komum frekar í partípartí,
föstudagspartí, föstudagspartí! (sungið eins og nýárspartílagið hjá Baggalúti)

Sumsé... okkur er boðið í partí hjá Fanneyju vinkonu minni hérna í Mosó, farið verður í heitan pott en þið náttla ráðið hvort þið komið með sundföt eður ei.
Sjálf ætla ég ekki í pottinn... æ dónt nenn itt.

Bööööööööttt olræt! Ætliði að koma ?
Og Hjildur það er engin afsökun að eiga að fara í pianotíma á morgun kl. 10 Meina... varstu ekki á balli í gær og komst svo í skólann í morgun kl. 8 ???!?!?!
Skora á ykkur að koma!
 Veiveiveiveiveiveiveiveiveiveiveiveiveiveiveiveiveiveiveiveiveiveiveveiveiveiveiveiveiveivei


Sjáumst í kvöld!
-Meistari Brynkzor.

Dalton Gengið?og Karen og Brynhildur og Guðrún og Hildur

ég er uppí rúmi undir sæng með tölvuna sem er næstum ofhitnuð ofan á mér og ég skal segja ykkur það að mér er svoldið heitt!

SÖNGBALL Á MORGUN VEIVEIVEIVEIVEIVEIVEIVEI.

Nýrri meðlimurog Karen og Brynhildur og Guðrún og Hildur

Okey, þar sem að Brynhildur, elsku krúttið mitt, hitti þennan gríðar stóra nagla á höfuðið þá hef ég (Guðrún Anna)  tekið þá stóru ákvörðun að gerast meðlimur.   Tökum nú einnar mínútu þögn til að fagna, frelsi síðunnar.

Nú eru Badehose bloggararnir sem sagt 4 það er: Hildur, Karen, Brynhildur og Guðrún Anna.  Ich liebe Badehose,  und gehe nach Hause, weil Hildur hat Tauser :D:D Ójeahhhhh ..... Tveir fílar lögðu af stað í leiðangur (þ.e. Hildur og Karen) lipur var ei þeirra fótgangur, takturinn fannst þeim heldur tómlegur (röddin á að hækka aðeins í þessum kafla) svo þeir tóku sér einn til viðbótar (þ.e. Brynhildur).  Þrír fílar lögðu af stað í leiðangur lipur var ei þeirra fótgangur, takturinn fannst þeim heldur tómlegur svo þeir tóku sér einn til viðbótar (þ.e. Guðrún Anna en ekki Anna Guðrún).  Viti menn nú er takturinn ekki lengur tómlegur heldur blómlegur, þar sem að Brynhildur hefur getið af sér mörg blómin.   :D:D:D:D

I'm out, lömbin mín :P

NýR meðlimurog Karen og Brynhildur og Guðrún og Hildur

Brynhildur hefur ákveðið að blogga um sjálfa sig sem nýja notanda síðunnar Badehose.
Hún spurði Hildi áðan hvort hún mætti joina og vonar að Karen sé alveg til í viðbótarmeðlim á síðuna.
Brynhildur sá hvert stefndi með þessa síðu þannig að hún ákvað að taka af skarið og skrifa nýtt blogg, þá aðallega um náttúrulegt salat sem er laust við öll eiturefni.

Það er hollt og gott og stundum af maður er heppinn þá má maður eiga von á hauslausum býflugnabúk ef marka má harmsögu Petru nokkurrar í stofu 2 í Cösu Christi um daginn.

Brynhildur vonar að allir taki henni fagnandi og taki einnig vel undir hin ókomnu blogg sem von er á í framtíðinni.

Hún þakkar innilega fyrir sig og einnig ber hún þakkir til hinna meðlima síðunnar auk þess að fyrir hönd síðunnar þakkar hún hinum ljúfu lesendum þessa bloggs.

Auglýsing

Ævintýri Lúðvíks, örlagafulla fisksins!

Prófíll

  • Nafn: og Karen og Brynhildur og Guðrún og Hildur
  • Staður: Reykjavík
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: bréfberi helvítis
  • Um mig: Þegar við erum ekki að leika okkur á badehose erum við að leika okkur á einkamal.is.
  • Annað: Yabba-dabba-dú. 16495876132605497861Y

Innskráningar kubbur

Það eru.....

Könnun

Hvað á Karen að gera í framtíðinni?

Þetta helst......

3. Janúar 2009

Athygli er vakin á því að SÖGURNAR AF LÚÐVÍKI, HINUM ÖRLAGAFULLA FISKI, eru komnar aftur!

3. Janúar 2009

Hildur og Brynhildur vinna hörðum höndum að því að koma síðunni aftur í gang, henda út gömlu stöffi og koma með nýja strauma inn ;)

1. Janúar 2009

Gleðilegt nýtt ár!

Eldri fréttir er hægt að skoða undir Aðalvalmynd.

Hvað er á fóninum?

Brynhildur: Congratulations - Jeff who?
Brynkz og Hildur: Kanye West f. Daft Punk (remix) - Stronger
Brynkz: David Guetta - Love Is Gone
Karen: Kate Nash - Birds
Hildur: Janis Joplin - Bye, Bye, Baby
Brynkz: Human Volume - Brain Police
Guðrún: Lion King lagið á þýsku
Hildur: Tower of Power - What is Hip?
Hildur: Peaches and Herb - Groove Thing

Ef þið viljið deila einhverju lagi með umheiminum, commentið bara og við bætum því hér inn.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Flokkar