Varúðog Karen og Brynhildur og Guðrún og Hildur

Hér sit ég sæl og glöð á þessum ágætis laugardegi! Guðmundur fór út í fótbolta og ég á víst að vera að læra á meðan...hah, sénsinn! Ónei, þar sem er tölva fyrir framan mig þar er ég ekki að fara að læra..heldur sit ég hér (eins og áður hefur komið fram) og leita að bréfum frá leynilegum elskhugum í tölvunni hans (so far ekkert fundið) eða bara einhverju áhugaverðu (so far ekkert fundið). Ég þoli ekki Machintosh tölvur. Í fyrsta lagi hef ég ekki hugmynd um hvernig maður skrifar Machintoss, örugglega ekki eins og ég er að skrifa það núna, í öðru lagi var ég í svona korter að finna netið (ekkert internet explorer hér) og í þriðja lagi er þetta lyklaborð og þessi skortur á mús alveg að fara með mig..ekkert hægt að tvísmella hér eins og á öllum eðlilegum fartölvum

Við fórum í þessa fínu Esjugöngu í morgun. Eða fín er nú kannski ekki orðið, það var kalt, vindur, klaki, snjór og ennþá meiri vindur, og ég verð nú að segja að ég var orðin nett pirruð á einhverjum, var ekki alveg búin að ákveða hverjum, fyrir að hafa dregið í þetta. Ég var alltaf á leiðinni niður aftur, en með sannfæringu Guðmundar um að það væri ,,bara pínulítið eftir"(fell sko ekki fyrir því aftur) þá komumst við alla leið (að steininum) og þá varð lífið sko gott, því það var meðvindur á leiðinni niður og við eiginlega runnum alla leið. Þessi ganga tók samt alveg undarlega mikið á, ég steinsofnaði eftir hana og er eiginlega ennþá hálfdösuð. Smáralindarferðin í dag spilar þó eitthvað inn í, erum við að grínast á ös?? Orðið útsala er ekki bara orð fyrir sumum, heldur svo miklu meira, lífsstíll! Ég sá tugi, ef ekki hundruð, manns vera að gramsa í ódýrum körfum með hverri tuskunni á eftir annarri, reyna að sannfæra sjálfa sig um að þetta væri þess virði að kaupa á 1000 kall. Guðmundur fellur svo sannarlega undir þennan hóp, hann kom, himinlifandi eftir langt og strembið grams, með einhverja ósmekklegustu skyrtu sem ég hef séð, ætlaði sko ekki að láta svona kostaboð framhjá sér fara, bara 1000 kall skyrtan!!!...en af hverju ekki bara að spara sér þennan þúsund kall? Flest þetta dót myndi maður vanalega ekki líta við, en svo ef það er á 50% afslætti, þá er það allt í einu orðið dýrindis munaður..ég læt ekki fallast í þessa gildru. Ok, reyndar fundum við frekar flotta peysu á 1000 kr (ekki samt að Guðmundi vantar peysu) og keyptum hana...Svo var röðin komin að nammilandi. Ég er mjöööög fegin að nammiland var ekki til þegar ég var lítil, ég er alveg nógu spennt fyrir því núna, 19 ára gömul. Ég vissi reyndar ekki að til væri fólk sem væri SVONA æst í nammi, við erum að tala um langa biðröð að básnum! Og þarna stóð ég innan um 5 ára krakka og foreldra þeirra, bíðandi eftir því að komast í nammið...ég hálfskammaðist mín, næstum því, en samt ekki nógu mikið til að vilja fara...mmm og akkúrat núna er ég að hugsa til nammipokans míns með hlýju í hjarta...Svona þarf lítið til að gleðja mann stundum:)
Kv. Karen
 

Vóóóog Karen og Brynhildur og Guðrún og Hildur

Ágætu meðmælendur, andmælendur, spakmælendur, íslenskumælendur, útlenskumælendur og annarskonar mælendur s.s. tímamælendur, buxnamælendur, skómælendur, vegamælendur, hagmælendur, vaxmælendur, nýmælendur, nýlendur og svo framvegis og svo framvegis.....

Hér sit ég í myrkrinu og þykist vera góður penni. Ekki svona penni samt eins og þú kaupir út í búð heldur.. æjj þið vitið hvað ég meina.
Eftir indælis stundir heima hjá Karen um daginn og umræðuna um þetta ágæta blogg ákvað ég að taka fyrsta skrefið í átt að nýjum, breyttum tímum.
Reyndar var ég ekkert fyrst þar sem heimurinn er allur kominn á hvolf og allir að reyna að stíga sín fyrstu skref eftir hinar miklu hamfarir sem hafa riðið yfir okkar smáu en samt svo stóru þjóð. Í dag beindust allra augu á okkar litila Ísland þar sem við erum búin að skíta svo mikið þvers og kruss upp á bak og út á svalir að það liggur við þjóðargjaldþroti. Eitthvað sem allir vissu að einhvern tímann ætti eftir að gerast skall svo hart á að neyðarlög urðu að vera samþykkt og ríkisstjórnin varð að grípa í taumana eða setja þá í fyrsta lagi á hina taumlausu frekjudurta sem voru að leika sér með peninga landans. Við sem héldum að við værum svo rík bara af því að nokkrir ríkisbubbar héldu að þeir gætu eignast heiminn á einu bretti.

...Talandi um Bubba... var hann ekki að kalla fólk niður á Austurvöll til að standa saman í gegnum kreppuna? Og á hann ekki að fara að spila á árshátíðinni á morgun ? Hey ég b.t.w kemst ekki af því að ég verð að vinna (Y) jeeee allllllllavega.
Ég ætla að halda áfram að vera töff og prjóna mér lopapeysu.

Ef að þið viljið fá peysu líka verðið þið að panta númer. Þær seljast út eins og heitar Lummur!!! Og ef þið hafið smakkað mínar lummur... þá vitiði að þið viljið ekki missa af Loppunum!!!

Vá ég bjó til nýtt orð um lopapeysur! Djöfull er ég góð... ég er BEST... ÉG ER !!! AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA ?!?!?!?!?!?!

Hvert stefnum við ?og Karen og Brynhildur og Guðrún og Hildur

Dömur mínar ég datt inn á þessa blessuðu síðu okkar, og það fyrsta sem ég tók eftir að síðasta bloggið okkar var rétt fyrir Jól. Hvert stefnum við? Við ættum að skammast okkar, og byrja að endurnæra gömlu skáldskapargáfuna. Hvernig væri að taka girls night out og ræða þessi mál fljótlega. Ég get ekki betur séð en að við þurfum að fara að hreyfa okkar feitu rassa og leggja okkar sveittu höfuð í bleyti.

En til að vinda mér í önnur málefni sem brenna á mér. Þá má Torres lesbía mæta durtunum á förnum vegi, þoli ekki fyribæri sem spila tussubolta og plokka á sér augabrúnirnar. Auk þess sem mér fannst hann ekki nógu vel plokkaður í leik hans gegn Þjóðverjum spurning um að hafa samband við Helenu fögru, hef heyrt að þær séu vel færar um að plokka karlmannshár.

Auglýsing

Ævintýri Lúðvíks, örlagafulla fisksins!

Prófíll

  • Nafn: og Karen og Brynhildur og Guðrún og Hildur
  • Staður: Reykjavík
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: bréfberi helvítis
  • Um mig: Þegar við erum ekki að leika okkur á badehose erum við að leika okkur á einkamal.is.
  • Annað: Yabba-dabba-dú. 16495876132605497861Y

Innskráningar kubbur

Það eru.....

Könnun

Hvað á Karen að gera í framtíðinni?

Þetta helst......

3. Janúar 2009

Athygli er vakin á því að SÖGURNAR AF LÚÐVÍKI, HINUM ÖRLAGAFULLA FISKI, eru komnar aftur!

3. Janúar 2009

Hildur og Brynhildur vinna hörðum höndum að því að koma síðunni aftur í gang, henda út gömlu stöffi og koma með nýja strauma inn ;)

1. Janúar 2009

Gleðilegt nýtt ár!

Eldri fréttir er hægt að skoða undir Aðalvalmynd.

Hvað er á fóninum?

Brynhildur: Congratulations - Jeff who?
Brynkz og Hildur: Kanye West f. Daft Punk (remix) - Stronger
Brynkz: David Guetta - Love Is Gone
Karen: Kate Nash - Birds
Hildur: Janis Joplin - Bye, Bye, Baby
Brynkz: Human Volume - Brain Police
Guðrún: Lion King lagið á þýsku
Hildur: Tower of Power - What is Hip?
Hildur: Peaches and Herb - Groove Thing

Ef þið viljið deila einhverju lagi með umheiminum, commentið bara og við bætum því hér inn.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Flokkar