Ó, tímiog Karen og Brynhildur og Guðrún og Hildur

Ó, tími, hvert fórstu? Ég hef ekki skrifað hér í svo guðs bænum langan tíma einfaldlega vegna þess að ég nennti ekki að muna lykilorðið. Jafnvel þótt að allir þeir sem lesa bloggin á þessari síðu vita nú þegar lykilorðið ætla ég ekki að birta það hér. Það heldur draumnum áfram um að þessi síða sé og verði ávallt vinsælli en erkióvinur okkar www.visir.is.

 Nú er árið 2009 runnið í hlaðið og fátt annað að gera en að opna það með slefsprunginni og hljómfagurri Lúðvíkssögu. Ef Brynhildur Sighvatsdóttir (bráðum Doktor Sighvatsdóttir M.D, Phd, ehf.) man á hvaða bindi ég er komin og á hvaða sögu má hún endilega "edit"-a bloggið og setja það inn. Ef hún nennir...en annars þarf hún þess ekkert...helvítis letihaugurinn...

Ævintýri Lúðvíks, örlagafulla fisksins
Saga ?, bindi ?

Lúðvík flækist í hýrt ástamál, með skelfilegum afleiðingum:

 Dagurinn var Y-ti skrúvember árið nítjánhundruð og skvabb (01.02.03 að okkar tímatali) og Lúðvík var þreyttur. Hann hafði verið að læra undir stóra stærðfræðiprófið sitt alla nóttina og gat nú farið með hverja einustu reglu án þess að veita henni nokkra hugsun. Reyndar var bara um eina sönnun að ræða, en fjandinn hafi það, hún tók yfir tvær fokking A5 blaðsíður! Ánægður, stoltur, og þó helvíti þreyttur, lagði Lúðvík af stað í skólann. Aðeins 717 klangon-sekúndur í prófið, núna mátti hann engan tíma missa! Er hann synti svo fallega um höfin blá kom auga á hann hýr bandormur sem lét fara hljótt um sig. Um var að ræða Jörund, hýra bandorminn. Jörundur hafði dálæti á Lúðvíki umfram alla aðra fiska og langaði að deila rekkju með honum. Hins vegar vissi Lúðvík ekki um tilvist Jörunds, en það átti allt eftir að breytast núna.

,,Afs-, afsakið, ekki ert þú Lúðvík, örlagafulli fiskurinn?", sagði Jörundur hálfum hljóðum í átt til Lúðvíks. ,,Þegiðu, renglulega fífl, ég er að flýta mér", var það sem Lúðvík vildi segja. Hins vegar sagði hann það ekki. Í stað þess sagði hann: ,,Rétt er það, Lúðvík heiti ég, það heiti ég, bí bí og blaka, áttu nokkuð klaka?", og vitnaði svo í textabrot úr laginu "I Wanna Rock" með glamrokksveitinni úreltu Twisted Sister, við takmarkaðar undirtektir. ,,Sæll vertu", sagði Jörundur. ,,Jörundur heiti ég, hýri bandormurinn, þú þekkir mig ekki en ég hef fylgst með þér síðasta áratuginn eða svo. Ég elska þig og mun ávallt elska þig. Það eina sem ég bið um er stefnumót. Vertu svo góður að hitta mig fyrir utan 10-11, Svamphöfða annað kvöld."

 Áður en Lúðvík gat hrist höfuðið og sagt ,,yfir mínum nábleika og sundurhöggna líkama" var Jörundur horfinn á braut. Lúðvík veitti þessu fyrst ekki meiri hugsun en þegar hann kom í prófið gat hann ekki tekið hugann frá því:

 Ef hann hefur verið að fylgjast með mér í áratug, þýðir það að hann hefur séð mín mest niðurlægjandi tilvik. Hann hefur séð atvikið þar sem ég settist óþægilega á brennda pylsu*! Síðan hefur hann líklega verið að fylgjast með mér í gegnum allt aulalega "það er kúl að vitna í brandara úr breskum gamanþáttum**"-skeiðið mitt. Þessu verður að linna! Á morgun verð ég einfaldlega að útskýra fyrir honum að ég er gagnkynhneigðari en geldur ánamaðkur og hann verður bara að sætta sig við það. Einnig verður hann að hætta að fylgjast með lífi mínu, fjandinn hafi það.

 *Atvikið endaði með því að Lúðvík var sendur upp á slysavarðstofu og þarf nú mánaðarlega að fara í endaþarmsskoðun. **Þegar allir vita að það er svo ótrúlega asnalegt.

 ,,Ehh, próftíminn er nú búinn. Skilið prófunum.", sagði Rut, geislavirka peran, en hún var prófdómari.

 O-ó. Lúðvík hafði ekki skrifað mikið. Atvikið fyrr um daginn hafði algerlega eyðilagt fyrir honum. Nú var hann reiður. Fokk. Sjitt. Fokk. Nú var hann orðinn virkilega reiður. Um kvöldið næsta dag mætti hann fyrir utan 10-11, Svamphöfða eins og Jörundur, hýri bandormurinn var að vonast til. En engan bandorm var að sjá. Hvar var hann?

,,Sæll, vinurinn.", heyrði Lúðvík úr vesturátt. Hann leit í þá átt eftir að hafa gengið frá áttavitanum sínum og sá þar engan annan en Jörund. ,,Ó, Jörundur, nú færðu það óþvegið! Þú kostaðir mig feril í stærðfræði og svo einnig orðstír minn sem vinsæll piparsveinn. Veistu ekki að ég er þekktur fyrir að vera gagnkynhneigðari en geldur ánamaðkur!" ,,Gerðu það, ekki meiða mig! Hvaða glæp framdi ég annan en að játa ást mín á þér! Þú verður að skilja að það er ekkert annað sem ég þrái meira en samlífi með þér!" ,,Úr sögunni!"

 Jörundur fann hjarta sitt kremjast. Lúðvík og Jörundur hittust aldrei aftur, enda hefur bandormurinn hýri ekki sést síðan þennan örlagaríka dag. Sagt er að hann hafi fallið í drykkju og erótískan skáldskap, og að lokum visnað og dáið. Mesti harmurinn er þó að Lúðvík gat ekki hafið feril í stærðfræði eins og hann ætlaði sér. En sú sóun, en sú sóun.

 Endir.

Með fylgir mynd af bandormi:
http://www.biologycorner.com/resources/tapeworm2.gif

Annars vona ég að öllum líði vel.
Kveðja,
Hildur.

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Ævintýri Lúðvíks, örlagafulla fisksins!

Prófíll

  • Nafn: og Karen og Brynhildur og Guðrún og Hildur
  • Staður: Reykjavík
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: bréfberi helvítis
  • Um mig: Þegar við erum ekki að leika okkur á badehose erum við að leika okkur á einkamal.is.
  • Annað: Yabba-dabba-dú. 16495876132605497861Y

Innskráningar kubbur

Það eru.....

Könnun

Hvað á Karen að gera í framtíðinni?

Þetta helst......

3. Janúar 2009

Athygli er vakin á því að SÖGURNAR AF LÚÐVÍKI, HINUM ÖRLAGAFULLA FISKI, eru komnar aftur!

3. Janúar 2009

Hildur og Brynhildur vinna hörðum höndum að því að koma síðunni aftur í gang, henda út gömlu stöffi og koma með nýja strauma inn ;)

1. Janúar 2009

Gleðilegt nýtt ár!

Eldri fréttir er hægt að skoða undir Aðalvalmynd.

Hvað er á fóninum?

Brynhildur: Congratulations - Jeff who?
Brynkz og Hildur: Kanye West f. Daft Punk (remix) - Stronger
Brynkz: David Guetta - Love Is Gone
Karen: Kate Nash - Birds
Hildur: Janis Joplin - Bye, Bye, Baby
Brynkz: Human Volume - Brain Police
Guðrún: Lion King lagið á þýsku
Hildur: Tower of Power - What is Hip?
Hildur: Peaches and Herb - Groove Thing

Ef þið viljið deila einhverju lagi með umheiminum, commentið bara og við bætum því hér inn.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Flokkar