sælarog Karen og Brynhildur og Guðrún og Hildur

Góðan daginn. Senn líður að borgarstjórnarkosningum. Við erum Ken og Barbie.*

Heyriði ég ætlaði bara að gefa ykkur smá öppdeit.
Nú ef að þið vissuð það ekki þá er ég alveg flutt austur og farin í FSU. Þetta taldist hentugra svo að ég gæti einbeitt mér að hestamennskunni (sem ég er samt ekki byrjuð í ennþá þetta árið).
YUP, Brynkz mætt í hnakkageymsluna. Svo virðist þó sem að hnakkarnir haldi sig einhvers staðar annars staðar... eða þá að þeir séu bara með öllu útdauðir þar sem þetta orð er sooo five years ago.

En mér líst bara ágætlega á mig. Námið er ágætt. Krakkarnir fínir og ég er bara aðal gellís í skólanum og allir tilbiðja mig. Það var líka markmiðið að opna huga þessara litlu moðhausa. DJÓK.
Neinei... skóli er bara skóli... alls staðar eins. Ég hef komist að því að það er alveg tilgangslaust að gera sér upp einhvern MR hroka þar sem að öllum finnst maður bara geðveikur lúði fyrir það eitt að vera við þennan skóla kenndur. Það er öðruvísi en stoltið sem maður fyllist þegar skólinn vinnur Gettu betur eða Morfís eða aðrar keppnir sem MR leggur í vana sinn að vinna.

En ég vil bara segja  að ég voni að þessi hittingur okkar gangi upp og að allir sjái sér fært að mæta. Ég hlakka til að sjá ykkur ;) JEEEEEEEEEEEEEEE Ég var líka búin að commenta á facebook.
Og þegar ég er á annað borð að tala um þetta þá langar mig bara að segja ykkur hvað mér þykir ógó vænt um ykkur þó að ég sé ekki svo heppin að geta hitt ykkur hvenær sem er. Mí lov jú gææææææææs bara svona svo að þið gleymið því ekki þó að ég sé farin í sveitina.

Ég bið að heilsa ykkur öllum.

Bææææææææææbbbbbbbbbbbbb

-Brynhildur



* Skaupið '94

Svefnog Karen og Brynhildur og Guðrún og Hildur

Lítið hefur gengið hjá mér að sofa síðan ég byrjaði í skólanum: Lota 1: Mánudagur kl. 00.00: Reyni að sofa, næ ekki að sofna. Mánudagur kl. 04.00: Dotta í u.þ.b. 30 mínútur Mánudagur kl. 06.45: Stend upp, hef ekkert sofið, fer í skólann. Mánudagur kl. 15.00: Komin heim úr skólanum, legg mig í tvo tíma. Lota 2: Mánudagur kl. 23.30: Reyni að sofa, næ ekki að sofna. Þriðjudagur kl. 08.30: Fer á fætur, hef lítið sem ekkert sofið. Svaf ekkert meira þann daginn. Lota 3: Miðvikudagur kl. 00.00: Reyni að sofa, næ ekki að sofna. Miðvikudagur kl. 05.00: Eftir mikinn lestur og tilraunir til svefns fer ég niður í tölvuna og svo seinna í skólann. Miðvikudagur kl. 16.50: Sit og rita þetta blogg, hef ekkert sofið þennan dag. Niðurstöður: Af 65 klukkustundna tímabilinu svaf ég í mesta lagi í 3 klukkutíma. Ef ég næ ekki að sofna í nótt munu slæmir hlutir gerast.

Ó, tímiog Karen og Brynhildur og Guðrún og Hildur

Ó, tími, hvert fórstu? Ég hef ekki skrifað hér í svo guðs bænum langan tíma einfaldlega vegna þess að ég nennti ekki að muna lykilorðið. Jafnvel þótt að allir þeir sem lesa bloggin á þessari síðu vita nú þegar lykilorðið ætla ég ekki að birta það hér. Það heldur draumnum áfram um að þessi síða sé og verði ávallt vinsælli en erkióvinur okkar www.visir.is.

 Nú er árið 2009 runnið í hlaðið og fátt annað að gera en að opna það með slefsprunginni og hljómfagurri Lúðvíkssögu. Ef Brynhildur Sighvatsdóttir (bráðum Doktor Sighvatsdóttir M.D, Phd, ehf.) man á hvaða bindi ég er komin og á hvaða sögu má hún endilega "edit"-a bloggið og setja það inn. Ef hún nennir...en annars þarf hún þess ekkert...helvítis letihaugurinn...

Ævintýri Lúðvíks, örlagafulla fisksins
Saga ?, bindi ?

Lúðvík flækist í hýrt ástamál, með skelfilegum afleiðingum:

 Dagurinn var Y-ti skrúvember árið nítjánhundruð og skvabb (01.02.03 að okkar tímatali) og Lúðvík var þreyttur. Hann hafði verið að læra undir stóra stærðfræðiprófið sitt alla nóttina og gat nú farið með hverja einustu reglu án þess að veita henni nokkra hugsun. Reyndar var bara um eina sönnun að ræða, en fjandinn hafi það, hún tók yfir tvær fokking A5 blaðsíður! Ánægður, stoltur, og þó helvíti þreyttur, lagði Lúðvík af stað í skólann. Aðeins 717 klangon-sekúndur í prófið, núna mátti hann engan tíma missa! Er hann synti svo fallega um höfin blá kom auga á hann hýr bandormur sem lét fara hljótt um sig. Um var að ræða Jörund, hýra bandorminn. Jörundur hafði dálæti á Lúðvíki umfram alla aðra fiska og langaði að deila rekkju með honum. Hins vegar vissi Lúðvík ekki um tilvist Jörunds, en það átti allt eftir að breytast núna.

,,Afs-, afsakið, ekki ert þú Lúðvík, örlagafulli fiskurinn?", sagði Jörundur hálfum hljóðum í átt til Lúðvíks. ,,Þegiðu, renglulega fífl, ég er að flýta mér", var það sem Lúðvík vildi segja. Hins vegar sagði hann það ekki. Í stað þess sagði hann: ,,Rétt er það, Lúðvík heiti ég, það heiti ég, bí bí og blaka, áttu nokkuð klaka?", og vitnaði svo í textabrot úr laginu "I Wanna Rock" með glamrokksveitinni úreltu Twisted Sister, við takmarkaðar undirtektir. ,,Sæll vertu", sagði Jörundur. ,,Jörundur heiti ég, hýri bandormurinn, þú þekkir mig ekki en ég hef fylgst með þér síðasta áratuginn eða svo. Ég elska þig og mun ávallt elska þig. Það eina sem ég bið um er stefnumót. Vertu svo góður að hitta mig fyrir utan 10-11, Svamphöfða annað kvöld."

 Áður en Lúðvík gat hrist höfuðið og sagt ,,yfir mínum nábleika og sundurhöggna líkama" var Jörundur horfinn á braut. Lúðvík veitti þessu fyrst ekki meiri hugsun en þegar hann kom í prófið gat hann ekki tekið hugann frá því:

 Ef hann hefur verið að fylgjast með mér í áratug, þýðir það að hann hefur séð mín mest niðurlægjandi tilvik. Hann hefur séð atvikið þar sem ég settist óþægilega á brennda pylsu*! Síðan hefur hann líklega verið að fylgjast með mér í gegnum allt aulalega "það er kúl að vitna í brandara úr breskum gamanþáttum**"-skeiðið mitt. Þessu verður að linna! Á morgun verð ég einfaldlega að útskýra fyrir honum að ég er gagnkynhneigðari en geldur ánamaðkur og hann verður bara að sætta sig við það. Einnig verður hann að hætta að fylgjast með lífi mínu, fjandinn hafi það.

 *Atvikið endaði með því að Lúðvík var sendur upp á slysavarðstofu og þarf nú mánaðarlega að fara í endaþarmsskoðun. **Þegar allir vita að það er svo ótrúlega asnalegt.

 ,,Ehh, próftíminn er nú búinn. Skilið prófunum.", sagði Rut, geislavirka peran, en hún var prófdómari.

 O-ó. Lúðvík hafði ekki skrifað mikið. Atvikið fyrr um daginn hafði algerlega eyðilagt fyrir honum. Nú var hann reiður. Fokk. Sjitt. Fokk. Nú var hann orðinn virkilega reiður. Um kvöldið næsta dag mætti hann fyrir utan 10-11, Svamphöfða eins og Jörundur, hýri bandormurinn var að vonast til. En engan bandorm var að sjá. Hvar var hann?

,,Sæll, vinurinn.", heyrði Lúðvík úr vesturátt. Hann leit í þá átt eftir að hafa gengið frá áttavitanum sínum og sá þar engan annan en Jörund. ,,Ó, Jörundur, nú færðu það óþvegið! Þú kostaðir mig feril í stærðfræði og svo einnig orðstír minn sem vinsæll piparsveinn. Veistu ekki að ég er þekktur fyrir að vera gagnkynhneigðari en geldur ánamaðkur!" ,,Gerðu það, ekki meiða mig! Hvaða glæp framdi ég annan en að játa ást mín á þér! Þú verður að skilja að það er ekkert annað sem ég þrái meira en samlífi með þér!" ,,Úr sögunni!"

 Jörundur fann hjarta sitt kremjast. Lúðvík og Jörundur hittust aldrei aftur, enda hefur bandormurinn hýri ekki sést síðan þennan örlagaríka dag. Sagt er að hann hafi fallið í drykkju og erótískan skáldskap, og að lokum visnað og dáið. Mesti harmurinn er þó að Lúðvík gat ekki hafið feril í stærðfræði eins og hann ætlaði sér. En sú sóun, en sú sóun.

 Endir.

Með fylgir mynd af bandormi:
http://www.biologycorner.com/resources/tapeworm2.gif

Annars vona ég að öllum líði vel.
Kveðja,
Hildur.

Auglýsing

Ævintýri Lúðvíks, örlagafulla fisksins!

Prófíll

  • Nafn: og Karen og Brynhildur og Guðrún og Hildur
  • Atvinna: bréfberi helvítis
  • Um mig: Þegar við erum ekki að leika okkur á badehose erum við að leika okkur á einkamal.is.
  • Annað: Yabba-dabba-dú. 16495876132605497861Y

Innskráningar kubbur

Það eru.....

Könnun

Hvað á Karen að gera í framtíðinni?

Þetta helst......

3. Janúar 2009

Athygli er vakin á því að SÖGURNAR AF LÚÐVÍKI, HINUM ÖRLAGAFULLA FISKI, eru komnar aftur!

3. Janúar 2009

Hildur og Brynhildur vinna hörðum höndum að því að koma síðunni aftur í gang, henda út gömlu stöffi og koma með nýja strauma inn ;)

1. Janúar 2009

Gleðilegt nýtt ár!

Eldri fréttir er hægt að skoða undir Aðalvalmynd.

Hvað er á fóninum?

Brynhildur: Congratulations - Jeff who?
Brynkz og Hildur: Kanye West f. Daft Punk (remix) - Stronger
Brynkz: David Guetta - Love Is Gone
Karen: Kate Nash - Birds
Hildur: Janis Joplin - Bye, Bye, Baby
Brynkz: Human Volume - Brain Police
Guðrún: Lion King lagið á þýsku
Hildur: Tower of Power - What is Hip?
Hildur: Peaches and Herb - Groove Thing

Ef þið viljið deila einhverju lagi með umheiminum, commentið bara og við bætum því hér inn.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Flokkar